Stjórn Hundaræktarfélags Íslands samþykkti á stjórnarfundi þann 20. janúar 2010 neðangreind erindi retrieverdeildar sem tekur í gildi 1. júní 2010.
Retriever:
Greinist hundur með mjaðma- og/eða olnbogalos D eða E verða afkvæmi hans ekki skráð í ættbók. Afkvæmi hunda sem báðir eru með C olnboga eða C mjaðmir fást ekki skráð í ættbók.
Sérreglur fyrir retrieverhunda mundu þá hljóða svo í heild sinni:
Retriever:
Mjaðma- og olnbogamyndir: Undaneldisdýr skulu mynduð og niðurstaða kunn fyrir pörun. Greinist hundur með mjaðma- og/eða olnbogalos D eða E verða afkvæmi hans ekki skráð í ættbók. Afkvæmi hunda sem báðir eru með C olnboga eða C mjaðmir fást ekki skráð í ættbók.
Augnvottorð: Vottorð má ekki vera eldra en 18 mánaða við pörun.
Eftirtaldar tegundir: Labrador retriever, Chesapeake Bay retriever, Nova Scotia Duck Tolling retirever (gildir frá 1. janúar 2007) og Golden retriver (gildir frá 1. júní 2008) verða að hafa undirgengist DNA próf gagnvart PRA til að hvolpar fáist skráðir í ættbók HRFÍ. Óheimilt er að para saman hunda sem greinst hafa sem PRA berar. Heimilt er þó að para hund sem hefur greinst sem PRA beri svo framanlega að hinn hundurinn sé PRA hreinn (Normal clear N/C, Normal clear by parentage N/C/P).